Daníel Geir Moritz



www.myspace.com/danielgeir

msn: bolli_bu@hotmail.com

www.facebook.com/danielgeir

Auglýsing

Jólaauglýsingar

03. desember 2008 klukkan 08:49
Það er svo ótrúlega stutt í jólin. 3 vikur þangað til.

Eitt af því sem setur svip sinn á hátíðarnar eru auglýsingar. 1. des hljómar jingle bell undir smáauglýsingum í útvarpinu o.s.frv.

Þessi auglýsing hér er klárlega mesta jólaauglýsingin:


Það er samt ein auglýsing fyrir komandi jól sem ég er algjörlega með á heilanum. Söngla ég byrjunina oft á dag. Þetta er svona skemmtilega hallærislegt:


Ekki laust við það að maður sé í jólaskapi, þó svo að mér finnist ekkert jólalegt við Coke eða Vodafone.

Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
1 athugasemd

Kristín læknir

02. desember 2008 klukkan 09:41

Ég var að lesa í Íslandsklukkunni í gær og fannst mér ein setning frekar spaugileg:

"Heyrðu nú annars lagsmaður, hvaða vit er í standa hér. Eigum við ekki heldur að fara til Kristínar Doktors og kaupa okkur kollu af öli?"

Ég man nú ekki betur en hjá henni fékk maður bara sárabindi og strumpaplástra.

Þangað til næst ..

Daníel Geir Moritz
1 athugasemd

Upp er runninn desemberdagur

01. desember 2008 klukkan 01:15
Það er fátt meira við hæfi en þessi fyrirsögn, sérstaklega á blogginu hjá mér.

Nú er orðið löglegt að spila jólalög og er um að gera að smella þeim góðu á fóninn.

Í fyrra var frumraun mín í jólalagasmíðum og sigraði það jólalag jólalagakeppni Rásar 2.

Þú getur smellt á heiti lagsins til að hlusta, og hægri smellt til að vista lagið.
Gjöfin mín ert þú.

Þetta skemmtilega krukkulega myndband var síðan gert af Hafdal kvikmyndagerð:


Það er gaman að rifja upp þessa tíma, enda ótrúlega mikið ævintýri sem ég fór í með öllum sem að þessu komu, er ég enn gríðarlega þakklátur því fólki.

Hlakka til að geta leyft ykkur að heyra jólalagið sem verður gefið út fyrir komandi jól.

Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
1 athugasemd

Blogg og föstudagslag

28. nóvember 2008 klukkan 09:02
Jæja loksins kominn föstudagur. Ljúft að vita til helgarfrís framundan. Ég held að þetta verði nú átakanlega róleg helgi, en tíminn leiðir hluti í ljós.

Föstudagslag dagsins er nú ekki af verri gerðinni. Ég var með vini mínum í efst á Marbakkanum á sínum tíma og fannst okkur fátt skemmtilegra en að stríða bróðir hans, sem var þá að drepast úr unglingaveiki. "Bank bank" frá okkur á dyrnar "Strákar hættið að banka og drullið ykkur í burtu" kallað á móti. Vitaskuld bankar maður aftur.

Einn daginn var þessi stóri bróðir ekki heima og var þá herbergið hans tekið út. Fórum við í 486 tölvuna og lékum við Larry. Eitt geisladiskahulstur vakti strax athygli mína og þrábað ég um að diskurinn yrði settur í tækið. Í fyrstu hlustun var skellihlegið, og í næstu 10 hlustunum á eftir líka. Mig minnir að við höfum komist óséðir úr þessari unglinganýlendu.

Lagið sem vakti þennan mikla hlátur er föstudagslagið í dag:


Góða helgi!

Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
2 athugasemdir

Hæ sæta

27. nóvember 2008 klukkan 08:49
Ég ákvað að taka upp þráðinn frá því kommenti sem ég las á bloggsíðu vinar míns um daginn. Þar kommentaði sameiginlegur vinur okkar um umfjöllunarefni dagsins.

Ég hef margoft spáð í þetta og er þetta oft rætt á milli vina, en enginn nógu heimskur til að skrifa um það á netið.

Facebook er nýjasta dæmið þar sem þetta er gjarnan til siðs. Málið er að stelpur ávarpa hverja aðra gjarnan "Hæ sæta ...", o.s.frv. Hvernig væri ef við félagarnir myndum nú ávarpa hvern annan með þessum hætti, og spyrja síðan eitthvað sem okkur langar að vita, sbr: Hæ sæti, langar þig í sund í kvöld?

Þetta hljómar eitthvað spes.

En það sem mér finnst jafnvel enn fáránlegra er þegar verið er að skrifa við t.d. myndir, eða svona kveðjur, og alls ekki sætar stelpur eru ávarpaðar með þessum hætti, sbr: Ég á þjóðhátíð með Stellu sætu (Mynd af Önnu Lúdda og Stellu stóru á þjóðhátíð). Þetta bara passar ekki.

Vissulega getur fegurðin komið innan frá og allt það. En er þetta ekki bara pínlegt fyrir viðkomandi stelpur? Mér fyndist allavega pínlegt ef það væri mynd af mér berum af ofan frá t.d. útskriftarferð í Mexico og einhver myndi skrifa "Daníel Geir sixpack" við myndina.

Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
8 athugasemdir

Sigur rós

26. nóvember 2008 klukkan 09:01
Ég man hvað ég þoldi ekki þessa hljómsveit. Píkuskrækir í takt við fiðluboga og textar sem enginn skilur, eða heyrir.

En menn þroskast. Sumir misvel.

Ég er búinn að hlusta mjög mikið á þessa hljómsveit að undanförnu og hef því myndband á þessari færslu:



Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
3 athugasemdir

Ákvörðun

25. nóvember 2008 klukkan 08:38
Þegar ég var lítill var ég tekinn með á fundi hjá Framsóknarfélagi Norðfjarðar, en þeir fundir voru haldnir í Brennu. Var ég vinsamlegast beðinn um að leika mér í einu herbergja hússins, en lá nú yfirleitt á hleri. Þarna var verið að ræða ýmis mál, og fundargestir yfirleitt fleiri en þingmenn flokksins eru í dag. Mér fannst ég vera mikilvægur á þessum fundum, 8 ára gamall eða svo, en ætli það hafi ekki reynst þrautinni þyngri að redda pössun og því var mér dröslað með.

Ég óx úr grasi og hef verið Framsóknarmaður síðan. Hef mætt á ótal samkomur á vegum flokksins, víðsvegar um land.

Ég er af miklu Framsóknarfólki kominn og er amma mín á Fáskrúðsfirði einn mesti Framsóknarskörungur landsins.

Framsóknarflokkurinn var einna öflugastur allra flokka að berjast fyrir álveri í Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun. Það kunni ég flokknum, mínum mönnum, vel að meta og verðlaunaði flokkinn að sjálfsögðu með mínu atkvæði í síðustu alþingiskosningum.

Undanfarið hefur flokkurinn verið í stjórnarandstöðu, en flokkar sem eru þar hafa oftast nær látið sér duga að gagnrýna ríkisstjórnina og stækka um leið. Draga sig heldur til hlés á opinberum vettvangi og koma síðan tvíefldir til leiks. Þetta á ekki við um Framsóknarflokkinn, sem hóf þetta kjörtímabil á því að drulla á sig og fór í fáránlegar stjórnarmyndunarviðræður við vondu kallana.

Þessi þolir ekki þennan, og hann sagði að þessi myndi ekki þola þennan eftir það sem hann sagði við hinn o.s.frv. Húsið á sléttunni, nema rigning og drungi.

Ég hef æ oftar verið að segja við sjálfan mig um afstöðu flokksins til hins og þessa: Nei ég er nú ekki alveg sammála þessu.

Hérna er tölvupóstur sem ég sendi í gær, og fyrir neðan er svarið sem ég fékk til baka:

Ég, undirritaður, óska hér með eftir því að vera skráður úr
Framsóknarflokknum, og þætti mér vænt um ef ég fengi tölvupóst því til
staðfestingar sendan til baka.

Bestu kveðjur,

Daníel Geir Moritz Hjörvarsson
Kt. 140985-3179

-------------------------------------------------------
Sæll Daníel.

Úrsagnarbeiðni þín er móttekin og hefur verið afgreidd.

Kær kveðja / Best regard

Framsóknarflokkurinn
--------------------------------------------------------

Þar hafið þið það. Ég hef sagt skilið við Framsóknarflokkinn, og er ekki skráður í einn einasta flokk.

Amma drepur mig!

Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
9 athugasemdir

Blogg

24. nóvember 2008 klukkan 09:01

Í dag er mánudagur. Það er sléttur mánuður til jóla. Ef þér fannst vera stutt síðan þú varst að gera eitthvað fyrir mánuði síðan, að þá veistu að það er álíka langt í jólin. Speki?

Helgin var gríðarlega róleg hjá mér. Gerði ekkert á föstudaginn nema að hanga heima hjá mér. Á laugardaginn hunskaðist ég í ræktina, horfði á fótboltaleik og spilaði play station í 5 klukkutíma. Á sunnudaginn (gær) hófust upptökur á nýju jólalagi. Ég hlakka til þegar lagið verður klárt.

Ég hef ekki komið til Nesk síðan um páska! Það er met í að vera lengi í burtu. Eitt klapp fyrir því, eða 10 maríubænir? Ég er orðinn mjög spenntur, en ég fer austur 20. des.

Í dag er mánudagur. Það er samt ekki mánudagur í mér, sem er gott. Það er yfirleitt meiri mánudagur í mér á þriðjudögum en á mánudögum. Kannast einhver við slíkt hjá sér?

3.000 manns safnast saman fyrir utan löggustöðina í Rvk og brjóta allt og bramla. Mér fannst nú góður gjörningur þegar þessi drengur dróg Bónus fánann að húni við alþingishúsið. En þessi drengur er hins vegar bara skríll.

Spurning hvort maður taki sér ekki 2-3 ár í að hugsa um hvenær maður borgi næstu hraðasekt?

Þangað til næst ..

Daníel Geir Moritz
2 athugasemdir

Gjafir og föstudagslag

21. nóvember 2008 klukkan 09:10

Á aðfangadagskvöld þarf fjölskylda mín venjulega að bíða í dágóðan tíma eftir mér svo hægt sé að byrja að opna pakkana. Ástæðan er sú, að ég er mjög lengi að borða og borða mikið. Ég held að lengsti tími sem ég hef setið lengur en hinir við borðið á aðfangadagskvöld eru 50 mínútur.

Ég hef alltaf verið Þorláksmessutýpa, þ.e.a.s. verslað jólagjafirnar á síðustu stundu. Ég toppaði þetta allt ein jólin, en þá rétt náði ég að redda gjöfum fyrir kl 23.00 á Þorlák. Daginn eftir var ég síðan allan minn tíma að klára jólamatinn og systir mín, með sinn ómetanlega "djöfull ertu pirrandi" svip, fylgdist bitur með. Eftir matinn sagðist ég þurfa aðeins að skreppa inn í herbergi. Þegar ég var búinn að vera þar í smástund, bankaði pabbi á dyrnar og var forvitinn um hvað ég var að bagsa inn í herbergi á þessari hátíðarstund. Síðan opnaði ég dyrnar og tók pabbi á móti mér með setningunni: ERTU AÐ PAKKA INN JÓLAGJÖFUNUM NÚNA?!?!?!?!

Ég setti upp glottið sem gjarnan er sett upp þegar krakkar gera eitthvað heimskulegt, en ekki endilega eitthvað af sér.

Í gær fór ég, Daníel Geir, og keypti slatta af jólagjöfum. Þau kaup eru hreinlega langt komin. Þetta á örugglega eftir að draga úr stemningunni á Þorláksmessu, eða kannski er þetta bara betra? Kemur í ljós.

Þá er komið að föstudagslagi dagsins. Ég ákvað að vera svolítið hýr á brá og skelli hér inn algjöru meistaraverki.



Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
2 athugasemdir

Uppáhalds íslenskar kvikmyndir

20. nóvember 2008 klukkan 09:24
Ég hef mjög gaman, svona almennt, af íslensku sjónvarpsefni. Þ.e.a.s. leiknu efni.

Mér fannst t.d. Fornbókabúðin og Kallakaffi skemmtilegt. Tala nú ekki um Fóstbræður o.s.frv.

Um daginn voru sýndir þættirnir Svartir englar. Mér fannst þeir þættir ljómandi skemmtilegir.

Íslenskar kvikmyndir eru margar hverjar alveg frábærar og ætla ég að birta minn topp 5 lista af þeim.

Nr. 5: Með allt á hreinu
Skemmtilega vitlaus mynd sem nánast öll alþjóð hefur eflaust séð. Kapphlaup Gæra og Stuðmanna. Til eru þónokkrir frasar úr þessari mynd sem er að mínu, litla, viti meistaraverk.

Nr. 4: Stella í orlofi
Þegar ég fór á mitt fyrsta fjarðaball var ég svo upptjúnaður af spennu eftir ballið að ég gat engan veginn sofnað. Ég var orðinn fullorðinn! Búinn að fara á fjarðaball og búinn að fara í ljós og setja gel í strípurnar. Ekki datt mér neitt sniðugara í hug en að eyða þessum andvökutíma í að horfa á Stellu í orlofi. Ég man meira að segja hvar ég sá þessa mynd fyrst, en þá var ég nú ekki hár í loftinu. Gargandi snilldar mynd.

Nr. 3: Nýtt líf
Daníel og Þór. Karl Ágúst og Eggert Þorleifsson. Það er eiginlega alveg merkilegt að mér finnst Eggert iðulega leiðinlegur leikari. En í Líf myndunum er hann stórskemmtilegur. Ekki er Karl Ágúst verri. Þetta er líka nokkur nostalgíu mynd þar sem ég væri alveg til í að fara eitthvað eitt sumarið og kynnast mér óþekktu samfélagi og hafa húmorinn að leiðarljósi.

Nr. 2: Sódóma Reykjavík
"Sódóma. Já hún fjallar um týnda fjarstýringu". Þetta er nú eflaust ekki spennandi lýsing á myndinni, sem þó er algjör snilld. Óskar Jónasson er snillingur og er Sódóma eitt afsprengi þess. Helgi Bjöss og Björn Jörundur eru mjög góðir í þessari mynd og gaman að sjá hvernig heilli hljómsveit er saumað inn í söguþráðinn, en HAM skartar leikara á borð við Sigurjón Kjartansson og söngfuglinum Ótarri Proppé.

Nr. 1: Englar alheimsins
Sorgleg, fyndin og skemmtileg. Ég held að ef einhverjar Hollywood stjörnur væru fengnar til að leika í þessari mynd og hún ameríkuvædd þá myndi hún annað hvort vera algjört flopp eða fá fjöldan allan af óskarsverðlaunum. Það eru gríðarlega margir góðir frasar í myndinni og mörg sprenghlægileg atriði. Frábærir leikarar í myndinni og hún vel gerð.

Ég er nú enginn súper gagnrýnandi, en þetta eru 5 uppáhalds íslensku myndirnar mínar.

"Hún bauð mér í bíó, og það á Chaplin mynd".

Þangað til næst ..
Daníel Geir Moritz
4 athugasemdir